Category: Tilkynningar

Borgarafundur um málefni bótaþega og láglaunaþega

Athugið eftirfarandi auglýsingu um borgarafund sem ber yfirskriftina Fátækt á Íslandi - lágmarksframfærsla. Fundurinn verður haldinn næstkomandi miðvikudag 8.sept, kl 20:00 í Ráðhúsi Reykjavíkur. Við hvetjum alla sem láta sig þetta málefni varða að fjölmenna á fundinn.
Smelltu hér til að sjá auglýsinguna

Starfsdagur 2010

Starfsdagur verður haldinn föstudaginn 10. september. Þá komum við öll saman og ræðum starfsemina sem hér fer fram. Við erum hér fyrir ykkur og því er mikilvægt að fá ykkar mat á því hvað gangi vel, hvað megi betur fara, hverju sé ábótavant og óskir ykkar og langanir um áframhaldið. Vonandi getum við komið til móts við flestar tillögur og óskir sem lagðar verða fram.
Starfsemi Hlutverkaseturs þróast ekki í rétta átt án ykkar aðkomu.

Boðið verður upp á morgunverð og hádegisverð og svo megum við eiga von á óvæntum uppákomum.
Nánari dagskrá auglýst síðar.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku.

Myndlist hjá Önnu

Athugið að nú verður olíumálun í boði bæði þriðjudaga og miðvikudaga kl. 10 - 12. Litir, penslar og strigar á staðnum. Allir velkomnir

Kennsla í ljósmyndun og vinnslu - Kynningafundur

Kynningarfundur verður haldinn 1. september nk. á einstaklings-miðaðri kennslu á myndavélar, ljósmyndun og myndvinnslu. Mönnum er boðið að koma með myndavélar sínar og fá leiðbeiningar í stillingamöguleikum þeirra á kynningarfundinum. Menn geta síðan samið um framhald við leiðbeinandann.

Komdu með þína eigin myndavél (lánsvél einnig í boði).
Leiðbeinandi: Jón Sigurgeirsson
Jón hefur lokið prófi í ljósmyndun frá Tækniskólanum

Tími: miðvikudagur 1. September kl. 13.00

Vinátta í gleði og sorg

Gigga hómópati flytur stutt erindi um vináttuna í gleði og sorg - umræður og spjall á eftir.
Í dag kl. 13.00

Menningarnótt

Laugardaginn næstkomandi verður Menningarnótt haldin hátíðleg og að venju ætlum við að taka þátt í henni.
Við verðum fyrir framan verslunina Janus, Laugavegi 25 frá kl. 14-16.
Við verðum í banastuði með trommuhring og verum því í takt við þemað sem í ár er: Strætin óma.
Trommurnar verða tákn Evrópuársins sem er: Gegn fátækt og félagslegri einangrun.
Að sjálfsögðu gefum við ókeypis faðmlög að venju. Endilega takið þátt með okkur og ekki væri verra að þið létuð okkur vita.

WordPress Themes