Smellið hér til að sjá bæklinginn
Opið hús
Á fimmtudögum milli 13 og 14 erum við með kynningar á Hlutverkasetri. Hefur þú áhuga á að kynna þér starfsemina. Allir velkomnir. Vinir, vandamenn, forvitnir og þeim sem láta sig fólk varða.
Við bjóðum upp á jákvætt umhverfi
Við hvetjum þá, sem misst hafa vinnuna eða önnur mikilvæg hlutverk að koma í Hlutverkasetur og taka þátt í að byggja upp jákvætt umhverfi, koma reglu á lífið, og kynnast fólki í svipuðum aðstæðum. Í gegnum þátttöku í verkefnum deilum við hugmyndum og vinnum saman.
Við veitum stuðning
Starfsfólk Hlutverkaseturs veitir hvatningu og stuðning, í gegnum samveru, samskipti og sameiginleg verkefni til að aðlagast breyttum aðstæðum. Í Hlutverkasetrinu starfa m.a. iðjuþjálfar ásamt einstaklingum sem hafa mikla lífsreynslu og sjálfboðaliðum í mannrækt.
Sjálfboðaliðar óskast
Ert þú til í að leggja okkur lið? Hefur þú eitthvað fram að færa sem gæti komið öðrum að gagni til að gera lífið skemmtilegt? Erum opin fyrir öllu, námskeiðum, fyrirlestrum, lærdómi, uppákomum, nærveru og stuðningi. Ef svo er vertu í samband við okkur í Hlutverkasetri.
Staðsetning
Hlutverkasetur er staðsett að Borgartúni 1.
Sími Hlutverkaseturs er: 517-3471 gsm: 695-9285
Gengið er inn sjávarmegin og erum við staðsett á annarri hæð.