Hughrif

(English below) HUGHRIF er yfirskrift listsýningar sem opnuð verður 4. nóvember kl. 15:30 í Líkn á Árbæjarsafni. Þátttakendur í listasmiðju Hlutverkaseturs heimsóttu Árbæjarsafn síðastliðið vor til að sækja sér innblástur og eru verkin á sýningunni afrakstur þeirrar heimsóknar. Verkin eru unnin í pappír og máluð á steina.
Á sýningunni eru einnig verk sem unnin voru í sambandi við uppákomuna (V)ertu úlfur? – listin að sjá hið sammannlega, samtal um geðheilbrigði utan hringsins. Þetta eru myndir af úlfum, teikningar, vatnslita – og akrýlmyndir.
Hlutverkasetur er virknimiðstöð sem tekur á móti öllum sem vilja auka lífsgæði sín, brjótast út úr einangrun, halda sér virkum eða þiggja aðstoð við atvinnutengda endurhæfingu. Starfsmenn eru iðjuþjálfar, listamenn og fólk með mismunandi lífsreynslu og þekkingu. Hlutverkasetur er staðsett í Borgartúni 1 á 2. hæð, gengið inn sjávarmegin.
Starfsfólk Borgarsögusafns og Hlutaverkaseturs vinna saman að því að tvinna safnheimsóknir saman við dagskrá setursins. LÍKN er fjölnota fræðsluhús á Árbæjarsafni og er ætlað fyrir ýmiskonar samstarfsverkefni, námskeið, smiðjur og annað fræðslutengt starf.
Aðgangur á opnun er ókeypis. Öll velkomin á meðan húsrúm og fjöldatakmarkanir leyfa. Sýningunni lýkur 14. nóvember.
///
HUGHRIF (Impression) is the title of an art exhibition that will be opened on 4 November at 15:30 in Líkn at Árbær Open Air Museum. Participants in Hlutverkasetur’s art workshop visited the museum last spring to get inspiration, and the works in the exhibition are the result of that visit. The works are made of paper and painted on stones.
The exhibition also includes works made in connection with the event (V)ertu úlfur? (…are you a wolf?) – the art of seeing what unites us as human beings, a conversation about mental health outside the circle. These are pictures of wolves, drawings, watercolours – and acrylic paintings.
Hlutverkasetur is an activity centre that welcomes everyone who wants to increase their quality of life, break out of isolation, stay active or receive assistance with vocational rehabilitation. Employees are occupational therapists, artists and people with different life experiences and knowledge.
Hlutverkasetur is located in Borgartún 1 on the 2nd floor.
The staff of Reykjavík City Museum and Hlutaverkasetur work together to link museum visits to the centre’s programme. LÍKN is a multi-purpose educational building at Árbær Open Air Museum and is intended for various collaborative projects, courses, workshops and other educational work.
Admission to the opening is free of charge. Everyone is welcome as long as accommodation and number restrictions allow. The exhibition ends on 14 November.