Verkefni

Verkefni innan Hlutverkaseturs eru fjölbreytt og í stöðugri þróun:

Föst verkefni

Notandi spyr Notanda (NsN)

Meginmarkmið verkefnisins er að kanna stöðu, ímynd, upplifun og reynslu einstaklinga með geðraskanir. Fá sýn notenda á þjónustunni; hvað þeir kunna að meta, hvað þeim er mikilvægt eða hvað þeim finnst vanta. Í NsN er það fyrst og fremst starfsfólk með notendareynslu sem aflar gagnanna, greinir gögnin og setur saman í skýrslu.

Kaffihúsaverkefnið

Hlutverkasetur hefur forgöngu í verkefni sem byggist á samningi sem gerður var milli Félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Hlutverkaseturs. Markmið þess samnings er að bjóða upp á atvinnutengda endurhæfingu fyrir ungt fólk á aldrinum 18-25 ára sem af ýmsum ástæðum hefur átt erfitt með að ná fótfestu í samfélaginu. Um er að ræða tilraunaverkefni.

Geðræktarnámskeið og fræðsla

Hlutverkasetur býður upp á geðræktarnámskeið og/eða fræðslu fyrir einstaklinga, stjórnendur, fyrirtæki, skóla og almenning. Fræðsla um geðrækt gefur almenningi verkfæri í hendur til að efla bæði eigið geðheilbrigði og annarra.

Valdefling í verki

Í samvinnu við Félags- og tryggingamálaráðuneytið eru haldnir fræðsludagar fyrir almenning um valdeflingu, notendarannsóknir, batahvetjandi þjónustu og reynslu notenda.

WordPress Themes