Starfsemi
Hlutverkasetur býður upp á umgjörð, hvatningu og stuðning fyrir þá sem vilja viðhalda virkni á markvissan hátt eða auka lífsgæðin. Stefnt er að því að viðhalda eða efla sjálfsmynd gegnum verkefni, fræðslu og umræður.
Markmið er að komast út á almennan vinnumarkað, fara í nám eða auka lífsgæði.
Leiðarljós Hlutverkaseturs er virk samfélagsþátttaka, að sinna hlutverkum sem gefa lífinu tilgang og þýðingu, jákvæðni og kímni.
Eitt af því mikilvægasta í lífinu er þátttaka í atvinnulífinu, það að hafa hlutverk. Vinnan hefur ekki aðeins fjárhagslegan ávinning heldur hefur hún einnig félagslegt gildi og er hluti af daglegu skipulagi.
Starfsemi Hlutverkasetur er mikilvægt samfélagsverkefni nú þegar fullfrískt fólk hefur misst atvinnu sína og þegar einstaklingar með skerta starfsgetu missa vonina, því þeir trúa því ekki að þeir eigi erindi á vinnumarkaðinn. Atvinnuleysið hefur líka slæm áhrif á ungt fólk, sem hefur enga atvinnusögu, stundar hvorki vinnu né skóla. Þörfin á að koma til móts við alla þessa hópa er brýn til að fyrirbyggja heilsubrest, niðurbrot og til að það skili sér aftur út á atvinnumarkaðinn þegar atvinnuhjólin fara að snúast aftur
Hlutverkasetur hefur sinnt atvinnulegri endurhæfingu frá árinu 2007
Í kjölfar efnahagshrunsins víkkaði Hlutverkasetur út starfsemi sína og opnaði hana fyrir atvinnuleitendum. Hlutverkasetur leggur áherslu á að allir geti lagt eitthvað af mörkum og hafa því margir boðið fram krafta sína og þekkingu, bæði atvinnuleitendur sem og fólk sem er í vinnu. Þessi viðbót hefur haft jákvæð áhrif á starfsemi Hlutverkaseturs. Atvinnuleitendur eru góðar fyrirmyndir og hvati fyrir aðra og hafa þeir aukið fjölbreytileikann.
Hlutverkasetur er í samstarfi við og styrkt af ótal aðilum innan félags- og heilbrigðisgeirans, Reykjavíkurborgar, atvinnu- og menntastofnanir, verkalýðsfélög sem og einstaklinga.

