Námskeið
Hlutverkasetur býður upp á ókeypis námskeið og hvetur alla sem vilja halda sér virkum að nýta sér það sem í boði er.
Flest námskeiðanna eru opin og velkomið að bætast í hópinn hvenær sem er. Athugið þá að eftirfarandi námskeið þarf að skrá sig í fyrirfram:
• Teikninámskeið byrjenda og framhalds
• Að hlusta á líkama sinn
• Tölvan mín
Til að sjá stundaskrá klikkið hér: Stundaskrá Hlutverkaseturs
Eftirfarandi námskeið eru í boði:
Hreyfing til heilsubótar - OPNIR TÍMAR
Á námskeiðinu gefst þátttakendum kostur á að auka meðvitund um viðbrögð líkamans við álagi og áhrifum slökunar. Þátttakendur skoða á hvern hátt þau verkefni sem tekist er á við í daglegu lífi í tengslum við heimilisstörf, vinnu eða tómstundir hafa áhrif á líkamslíðan. Skoðaðar eru fjölbreyttar leiðir til að draga úr álagi og auka vellíðan. Námskeiðið er í formi fyrirlestra, verklegra æfinga og slökunar.
Tími: Þriðjudagar og fimmtudagar kl. 10.00-11.30, í allt 4 skipti.
Skráið ykkur í síma 517-3471 námskeiðið verður haldið um leið og næg þátttaka fæst:
Kennarar: Helga Ólafsdóttir og Kristín G. Sigursteinsdóttir, iðjuþjálfar
Þátttaka tilkynnist í síma 5173471 og 6959285
Hvernig næ ég athygli atvinnurekandans?
Þegar margir sækja um sama starfið er mikilvægt að orða umsóknina
þannig að hún veki athygli atvinnurekandans. Komið er inn á mikilvægi tengslanets og meðmæla og hvernig best er að undirbúa sig fyrir viðtal.
Leiðbeinandi: Jens Jensson
Tími: eftir samkomulagi
Þátttaka tilkynnist í síma: 517-3471
Enn bætist við flóruna í listadeildinni okkar.
Nú gefst tækifæri til að prufa sig áfram með akrýllitum í sköpun listaverka.
Hámarksfjöldi 6 manns
Skráning er nauðsynleg í síma 517-3471
Leiðbeinandi: Ingþór Hrafnkelsson
Tími: Föstudagar kl. 10.00-12.00
Guðrún Ólafsdóttir (Gigga okkar) hómópati ætlar að koma og vera með stutta
fræðslu um heilsutengd málefni síðasta fimmtudag í hverjum mánuði.
Mismunandi efni verða tekin fyrir í hvert sinn og verða umræður í lokinn
ásamt spjalli um lífið og tilveruna.
Fyrsta skiptið verður fimmtudaginn 26. ágúst kl. 13:00.
Karlahópurinn hittist í Hlutverkasetri á föstudögum kl. 13:00 og er til 14:00 (eða 15:00, fer eftir fjölda, umræðuefna og áhuga).
Pása kl. 14:00
Fundarherbergið er lokað á meðan fundur stendur yfir en mönnum er frjálst að yfirgefa fundinn þegar þeim sýnist.
Fjöldi manna er 2 – 10 (höfum mest verið 6)
Umræðuefni eru eftir hverjum og einum.
Notaður er „talbolti“ þannig að sá sem hefur orðið er með boltann hjá sér og fær þá frið til að tala en leggur hann á mitt borðið þegar orðið er laust, þá tekur sá sem vill segja eitthvað boltann og hann getur verið viss um að hann fái frið til að tala.
Umræðurnar eru ýmist á íslensku og ensku, eða bara íslensku.
Markmiðið með svona hóp er að gefa körlum tækifæri á að koma í hóp þar sem þeir geta talað við eða hlustað á aðra karla, ræða hugmyndir,áhugamál eða mál sem erfitt er að ræða annarsstaðar.
Það ríkir trúnaður um það sem fram fer á fundum karlahópsins.
Fundarstjóri karlahóps er Bergþór G. Böðvarsson
Hentar bæði byrjendum og þeim sem hafa reynslu af jóga
Kennt er eftir forskrift Yogi Bhajan. Kundalini jóga er viðamikið og kröftugt jóga þar sem áhersla er lögð á hugleiðslu, hreyfingu og öndun. Markmiðið að styrkja líkamann, efla meðvitund og auka lífsorku.
Gott er að vera í ljósum fötum sem þægilegt er að hreyfa sig í. Nemendur geta tekið með sér sitt eigið teppi og dýnu ef þeir kjósa, en slíkt verður líka á staðnum. Ekki er gott að borða mikið á undan jóga tímum.
Leiðbeinandi: Sólveig Hlín Kristjánsdóttir, jógakennaranemi
Tími: þriðjudagar kl. 15.30-16.30
Á námskeiðinu gefst þátttakendum kostur á að vinna á leikrænan, skapandi og skemmtilegan hátt til að hafa áhrif á eigið líf, tilfinningar og hugsanir. Námskeiðið hentar öllum þeim sem áhuga hafa á sjálfsrækt og leiklist jafnt fagfólki sem áhugafólki. Engar kröfur um sértæka forþekkingu eða hæfileika eru gerðar til þátttakenda.
Kennari er Trausti Ólafsson. Hann hefur í mörg ár unnið með leiklist sem tæki til geðræktar og er einnig doktor í leiklistarfræðum.
Tími: mánudagar kl. 14.00 – 16.00
Þátttaka tilkynnist í síma 517-3471 eða 695 9285
ER Í SUMARFRÍI - VERÐUR AUGLÝST NÁNAR MEÐ HAUSTINU
Nú gefst áhugasömum tækifæri til að koma saman og leysa ýmiskonar miserfiðar þrautalausnir og gátur, skoða samhengi og tengsl hluta út frá óvenjulegu sjónarhorni með hjálp stærðfræðinnar.
Stjórnandi: Trausti Traustason
Tími: þriðjudagar kl. 10.00 – 12.00
Á námskeiðinu verður farið í grunnatriðum við handmótun leirs, notkun mismunandi verkfæra, lita og að glerja hluti. Verkefnavalið er frjálst.
Leiðbeinandi : Helga Pálsdóttir
Þátttaka tilkynnist í síma 5173471 eða 6959285
Tími: Fimmtudagar kl. 13.00-15.00
Hefjum vikuna full af orku og gleði.
Anna mætir eldhress og kennir okkur nokkur dansspor, maga- og handahreyfingar. Ótrúlega skemmtileg upplifun
Gott er að vera í þægilegum fötum og taka með sér slæðu eða sjal.
Umsjónarmaður: Luidmila Ólafsson og Anna Henriksdóttir
Tími: Mánudagar kl. 13-14
Myndlist fyrir venjulegt fólk
Góð leið til að tjá tilfinningar er í gegnum listsköpun, líka fyrir „venjulegt fólk.“ Við tökum fram pensla, olíu- og akrýlliti og hikum ekki við að leyfa tilfinningunum að flæða á strigann. Okkur er alveg sama þótt verkin okkar séu ekki (að eigin mati) sýningarhæf, aðalatriðið er að njóta þess að leika sér og skapa.
Leiðbeinandi kynnir mismunandi beitingu pensla og efnis ásamt æfingum.
Kennari: Anna Henriksdóttir
Tími: Þriðjudaga og miðvikudaga kl. 10 – 12
yoga – öndunartækni - hugleiðsla
Kennari: Lilja Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur
Tími: Miðvikudagar kl. 15.30-16.30
ER Í SUMARFRÍI - VERÐUR AUGLÝST NÁNAR MEÐ HAUSTINU
Alla daga getum við setið saman í sófahorninu með handavinnuna okkar og spjallað. En á fimmtudögum er Jóhanna tilbúin að aðstoða við prjónaskap, hekl og einnig saumaskap.
Tími: fimmtudagar kl. 10.00 – 12.00
Leiðbeinandi: Jóhanna Axelsdóttir
Þegar fólk er ekki á atvinnumarkaði er mikilvægt að skapa sér/halda rútínu yfir daginn. Við höldum daglega fundi þar sem við „römmum inn“ viðfangsefni dagsins ásamt því að spjalla saman um lífið og tilveruna. Inn á milli verða stuttir fyrirlestrar og verkefni sem tengjast lífsleikni.
Næsta námskeið verður haldið þegar næg þátttaka hefur fengist. Skráið ykkur í síma 5173471.
Námskeiðið verður haldið á fimmtudögum 10:00 - 12:00.
Um námskeiðið:
Baujan er sjálfstyrkingaraðferð sem hefur verið kennd í skólum, félagsmálakerfinu og víðar síðan árið 2000 og hefur gefið mjög góða raun.
Sjálfstyrking byggð á tilfinningavinnu og slökunaröndun.
Aðferðin er fljótvirk, árangursrík og umfram allt auðveld aðferð í sjálfstyrkingu þar sem tilfinningavinna er tengd öndun og er því auðveld til uppbyggingar.
Baujan er sjálfstyrking þar sem ekki er horft á yfirborðsöryggi heldur er farið í kjarnann sjálfan, grunninn sem þarf að byggja á. Hún er tilvalinn fyrir þá sem ætla að byggja sig upp og ætla sér að öðlast aukið sjálfsöryggi eða til að öðlast þá innsýn að hver og einn eigi möguleika á að stjórna líðan sinni.
Leiðbeinandi er Guðbjörg Thoroddsen, leikari, ráðgjafi og kennari.
Fyrir byrjendur og lengra komna
Kenndur verður manngangurinn og skákæfingar iðkaðar. Fyrir þá sem eru lengra komnir er boðið upp á þyngri þrautir.
Tími: Miðvikudagar kl. 13.00-16.00
Leiðbeinendur:Sturla og Stefán Gauti
Námskeið í grunnteikningu - fjögur skipti
Kynnt eru undirstöðuatriði í formteikningu og hlutateikningu. Frumform og einfaldir hlutir eru mótaðir með skyggingu. Samspil ljóss og skugga er skoðað og mismunandi skyggingaraðferðir kynntar. Undirstöðuatriði fjarvíddar, hvarfapunktar og línur skoðaðar. Teiknaðar verða einfaldar fyrirmyndir í réttum stærðahlutföllum.
Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku í síma 5173471 eða 6959285
Leiðbeinandi : Anna Henriksdóttir
Tími: Miðvikudagar kl. 13.00-15.00
Allir geta verið með, líka þeir sem aldrei hafa snert á hljóðfæri. Þátttaka í trommuhring eykur vellíðan, skapar tengsl, dregur úr streitu og eflir sköpunargáfuna.
Handtrommur og ásláttarhljóðfæri á staðnum
Kennari: Alseny Sylla
Tími: fimmtudagar kl. 15.00-16.00
Fyrir byrjendum jafnt sem lengra komna.
Á námskeiðinu er meðal annars kennt að:
• Ná í frí vírusvarnarforrit og stilla þeim upp
• Að uppfæra og finna frí forrit
• Að koma tölvunni í stand
• Gera við einföldustu hluti í tölvunni
Þátttakendur komi með eigin tölvu og mús
Athugið að skráningar er þörf í þessa tíma í síma 517-3471Töskusaumur
Langar þig í nýja tösku?
Við erum í saumastuði. Komdu hingað og saumaðu þér nýja tösku. Helga hefur margar skemmtilegar hugmyndir og veitir aðstoð. Eitthvað af efni eigum við til. Rukkað er fyrir efnisgjald.
Leiðbeinandi : Helga Ólafsdóttir
Tími: Föstudagar kl. 10.00 -12.00
Hreyfing til heilsubótar - OPNIR TÍMAR
Aldrei er góð vísa of oft kveðin og gildi reglulegrar hreyfingar þar með talin. Regluleg hreyfing hefur jákvæð áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu okkar. En þar sem það er stundum hægara sagt en gert að koma sér ein/n af stað ætlum við að gera þetta saman. Farið verður í gönguferðir í miðbæ Reykjavíkur. Allir sem hafa áhuga eru velkomnir að vera með. Umsjón með gönguferðum verður í höndum starfsfólks Hlutverkaseturs.
Lagt verður af stað frá Hlutverkasetri, Laugarvegi 26 (Grettisgötumegin) klukkan 11.00 mánudaga, miðvikudaga, fimmtudaga og föstudaga.
Stuttar gönguferðir fyrir þá sem eru að byrja að koma sér í form og vilja fara rólega af stað – aðeins 20 til 30 mínútur í senn.
Tími: Mánudagar, miðvikudagar og föstudagar kl. 13.00
Slökun - OPNIR TÍMAR
Slökun er aðferð sem hefur góð áhrif á líkama og sál. Hvað er notalegra en að kúra undir teppi og slaka vel á. Eftir hálftíma slökun rísum við upp hress og endurnærð og verkefni dagsins verða sem leikur einn. Dýnur og teppi eru á staðnum.
Leiðbeinandi: Kristín G. Sigursteinsdóttir og Helga Ólafsdóttir, iðjuþjálfar.
Tími: þriðjudagar og fimmtudagar kl. 12.30 - 13.00
Handavinnuhornið - OPNIR TÍMAR
Ertu með eitthvað á prjónunum? Taktu handavinnuna með í sófahornið á mánudögum. Adda Gerður tekur vel á móti þér, heldur utan um hópinn og veitir aðstoð. Við eigum nóg af uppskriftum.
Tími: Mánudagar kl. 10-12
4 Comments
Other Links to this Post
RSS feed for comments on this post. TrackBack URI


By Sveinbjörn Fjölnir Pétursson, 19. June, 2009 @ 16:35
Til hamingju með öll þessi flottu námskeið.
By Þorbjörg Sigurðardóttir, 27. July, 2009 @ 10:44
Takk fyrir frábæra frammistöðu og námskeið sem eru í boði.
Lífgar upp á tilveruna.
By Birgitta Elín, 18. February, 2010 @ 08:26
Bara frábær námskeið hjá ykkur og alltaf gott að líta inn til ykkar
Þið eruð æðisleg
knús á liðið sjáumst
By Eygló frænka, 23. February, 2010 @ 18:32
Hvort er rétt?
Tilkynning um að “trommuhringur” falli niður mánudaginn 22.feb.
“Námskeiðið” er samt skráð á fimmtudögum:
“Trommuhringur
Allir geta verið með, líka þeir sem aldrei hafa snert á hljóðfæri. Þátttaka í trommuhring eykur vellíðan, skapar tengsl, dregur úr streitu og eflir sköpunargáfuna.
Handtrommur og ásláttarhljóðfæri á staðnum
Kennari: Gray Johnson
Tími: fimmtudagar kl. 15-16″