Starfsdagur 2009
Starfsdagur Hlutverkasetur 28. ágúst 2009
Allir sem tengst hafa Hlutverkasetri voru boðnir að taka þátt á starfsdeginum. Dagurinn hófst með sameiginlegum morgunverði. Í byrjun var spjallað á léttum nótum. Þeir sem mættu seinna voru virkjaðir inn í umræðuhópana. Skipt var upp í þrjá hópa og umræðuefnin voru:
1. Hvað er að virka í Hlutverkasetri.
2. Hvernig má bæta starfsemina.
3. Gildi Hlutverkaseturs.
Samantekt
Hvað er að virka í Hlutverkasetri? Þátttakendur litu á Hlutverkasetur sem vinnustað, sem skapaði umgjörð og rútínu til að viðhalda virkni. Það að vera virkur eykur hæfni í mannlegum samskiptum, minnkar kvíða og vonleysi. Þátttakendum fannst jákvætt að þeir tæku ábyrgð á eigin dagsskipan með því að velja sjálfir hverju þeir tækju þátt í. Ánægja var með að hafa tengilið og geta fengið aðstoð við að setja sér markmið. Eins var gott að það væri hægt að skipta um tengilið. Það skipti einnig máli að eiga möguleika á að láta gott af sér leiða og aðstoða aðra og jafnfram haft áhrif á þróun starfsemina. Ánægja var með að skipulag starfsseminnar er opið og ekki fastnjörvað. Það er plús við staðinn að koma á eigin forsendum. Skemmtilegt þykir að hér mætir fjölbreyttur hópur og að samskiptin geti verið á mismunandi tungumálum (sbr námskeiðin). Þátttakendur finna fyrir samkennd á staðnum sem er þeim afar mikilvæg. Sérstök ánægja var með gott aðgengi að tölvum. Þátttakendum fannst gott að blanda saman ólíkum hópum og hafa þennan fjölbreytileiki þó að það reyni vissulega oft á og undirstrikar mikilvægi umburðarlyndis í garð annarra. Það sem er að virka vel í dagskránni er m.a. göngurnar, leiklistin, myndlistin og súpan. Fólk var yfirleitt ánægt með leiðbeinendur, en tekið var fram að það mætti vera meira aðstoð í myndlistinni og að slökunin væri betur nýtt.
Hvernig má bæta starfsemina? Það sem er sameiginlegt með hópnum sem stundar Hlutverasetur eru erfiðleikar við að vakna á morgnana og byrja daginn. Stungið var upp á að hafa fasta tíma hvern morgun milli 9:30 og 10:00 svo kölluð Rammagerð. Markmið með fundunum yrði að koma sér af stað á morgnana. Fundirnir yrðu þá vettvangur til að skipuleggja daginn og deila út verkefnum í Hlutverkasetri fyrir þá sem það vilja. Mikilvægt væri að fólk upplifði að þeirra nærvera skipti máli. Ef það mætir ekki þá skipti það máli fyrir hina í hópnum. Þátttakendur voru sammála um að hringja í þá sem þess óska.
Tillögur af hugmyndum um hlutverk:
1. Útbúa lista yfir verkefni sem þarf að sinna á hverjum degi.
2. Ákveðið hver gerir hvað og hafa varamenn ef fólk mætir ekki.
3. Allir taki þátt í því að koma með hugmyndir að verkefnum sem hægt er að gríp í.
Móttaka nýliða. Setja þarf í betri farveg hvernig tekið er á móti nýju fólki. Það þarf að aðstoða fólk betur við að finna sér hlutverk í Hlutverkasetri. Þar kemur Rammagerðin inn þar sem hlutverkum verður deilt út. Einhverjir hafi það t.d. sem hlutverk að taka á móti fólki á föstudögum. Fundarmenn vilja festa fólk betur í upphafi með því að útskýra gildi staðarins. Fljótlega fengi viðkomandi “Buddy” sem þú gætir leitað til.
Tengiliðir. Þeir sem hafa stundað Hlutverkasetur í einhvern tíma verði einnig tengiliðir við þá sem er að byrja til að flýta fyrir að fólk nái að tengjast staðnum.
Hópferðir. Gera meir að því að fara saman út fyrir Hlutverkasetur, í bíó, leikhús, söfn, kaffihús o.s.frv.
Heimasíðan. Heimasíðuna þarf að bæta og gera meira lifandi og upplýsingar um námskeiðin meira áberandi. Búið var að gera fyrirspurn til tækniskólans í vor að nemendur þar til að útbúa heimasíðu. Því var fylgt eftir þegar skólarnir byrjuðu í haust. Nemendur völdu í haust að búa til sín eigin fyrirtæki. Hlutverkasetur mun samt halda áfram tengslunum við kennara Tækniskólans. Setja má upp hugmyndatorg, tengja við google leit – frí námskeið, ókeypis námskeið, endurhæfingu, atvinnulega endurhæfingu, atvinnuleitendur o. s.fr. Búa til póstlista sem sendir upplýsingar um hvað er á döfinni í Hlutverkasetri. Á Facebook eru ýmis möguleika sem hægt væri að nýta betur eins og Fansíðuna, til að virkja hópana og leita eftir vinum.
Kynning. Efla þarf samstarfið við Rauða krossinn Þá þarf að kynna starfsemina meira út á við. Kynna fyrir prestum, fjölmiðlum o.s.frv. Fara með kynningar inn í þjónustumiðstöðvar og eldri borgara. Þar gætu legið hæfileikar í tengslum við fleiri námskeið. Þeir sem stunda Hlutverkasetur taki þátt í því að kynna starfsemina. Póstlistinn þarf að vera uppfærður reglulega. Einnig kom fram hugmynd um að senda skoðunarkönnun til þeirra sem hafa stundað Hlutverkasetur. Fá þá til að skrifa á hvern hátt Hlutverkasetur hefði nýst þeim sem væri síðan hægt að nota til kynningar og setja á heimasíðuna. Koma á sms skilaboðun til þeirra sem vilja vita hvað er að gerast. Þeir sem stunda Hlutverkasetur skrifi greinar í Mbl eða Fréttablaðið. Fara í viðtöl, koma sér í fréttirnar, taka þátt í umræðum á bloggi og þar sem samfélagsumræður eru í gangi.
Meiri umburðarlyndi í garð fólks sem er sérstakt og taka tillit til að fólk hafi ólíkar þarfir. Þarf að hrista saman ólíka hópa. Undirstrikað var, að þó að konur séu t.d. í meirihluta af þeim sem stunda staðinn þá hafa karlmenn jafn mikla þörf fyrir að hitta aðra. Vantar aukna umræðu um mikilvægi þessarar starfsemi.
Nærumhverfi. Þeir sem stunda Hlutverkasetur vantar oft aðstoð við praktískar lausnir heima. Gott væri að geta fengið aðstoð á heimavelli. Heimilishald er oft farið úr böndunum og margir þurfa aðstoða við að “núllstilla” umhverfi sitt eins og það var orðað.
Gildi Hlutverkaseturs
Valfrelsi - Félagslegt/sameiginleg reynsla/ekki ein - Skemmtilegt- Fjölbreytni- Staður þar sem allir eru velkomnir - Vinna - Einstaklingsmiðað - Ákveðinn rammi í rammaleysi - Samkennd - Jafnrétti/jafningagrunnur - Fræðsla - Umburðarlyndi - Stöðugt í endurskoðun - Endurspeglun á samfélaginu.

