Kaffihúsaverkefnið
Nýtt verkefni hófst í maí 2009. Markhópurinn er ungt fólk á aldrinu 18 – 25 ára sem einhverra hluta vegna hefur ekki náð fótfestu á atvinnumarkaðinum. Veitingarstöðum í miðborg Reykjavíkur er boðið að taka þátt í verkefninu. Vinnustaðirnir fá greitt með einstaklingunum fyrstu vikurnar og starfsfólk Hlutverkaseturs sér um samningagerð við veitingarhúsin, tengsl milli staða og eftirfylgd. Vinnuveitendur hafa tekið þessu verkefni opnum örmun og gefið ungu fólki með skerta starfsgetu tækifæri á að spreyta sig á almennum vinnumarkaði. Fjölsmiðjan er fyrsti samstarfsaðilinn og með haustinu verður þróað samstarf við Vinnumálastofnun.

