Spennandi erindi í dag!

Iðjuþjálfanemar á þriðja ári í Háskólanum á Akureyri verða með eftirfarandi erindi í Hlutverkasetri í dag kl.13:00:

Hvað segir líkamsstaða þín um þig?
Líkamsstaða getur haft áhrif á sjálfstraust okkar. Við förum yfir það hvernig bætt líkamsstaða getur aukið sjálfstraust, haft áhrif á það hvernig þér líður í eigin skinni og hjálpað þér að koma vel fyrir í starfsviðtali.
Tími: Þriðjudaginn 22.apríl frá 13-14

Erindi miðvikudagsins: Töfrarnir utan þægindarammans!
Það sem virðist vera ómögulegt getur verið gerlegt.
Miðvikudaginn 23. apríl 2014, klukkan 13:00 til 14:00

Við hlökkum til að sjá ykkur!
Alda, Rakel, Alexandra og Guðrún