Esjuferð á fimmtudaginn
Fimmtudaginn 29. Júlí förum við í gönguferð frá Hlutverkasetrinu Borgartúni 1 á Esjuna. Mæting er í Hlutverkasetri kl. 11:30 og þaðan sameinast í bíla og farið að Esjunni. Mikilvægt er að vera í þægilegum fatnaði og góðum skóm og þeir sem eiga göngustafi mega endilega taka þá með(ekki nauðsynlegir). Gott að er taka með sér smá nesti og drykkjarföng fyrir gönguna.
Allir velkomnir með en athugið að þið eruð á ykkar ábyrgð og við viljum endilega að áhugasamir skrái sig í síma 517-3471.

