Fella og strandferð í Öskjuhlíð og Nauthólsvík
Á fimmtudaginn 15. Júlí förum við í gönguferð frá Hlutverkasetrinu Borgartúni 1 í Nauthólsvíkina. Við leggjum af stað kl: 13 og byrjum á því að ganga upp í Öskjuhlið og þræðum þar göngustíg að Nauthólsvík. Þar sem veðurútlit er gott munum við setjast niður og njóta strandarinnar, borða nesti og jafnvel sóla okkur aðeins. Verið því viðbúin góðviðri og takið með ykkur nesti og eitthvað til að sitja á í sandinum. Allir velkomnir með en athugið að þið eruð á ykkar ábyrgð og við viljum endilega að áhugasamir skrái sig í síma: 517-3471.

